Varðveisla á frjósemi

Varðveisla frjósemi vegna læknismeðferðar

Ákveðnar læknismeðferðir geta haft neikvæð áhrif á frjósemi og valdið skertri starfsemi eggjastokka eða minnkaðri sæðisframleiðslu. Í sumum tilfellum geta áhrifin verið langvarandi eða varanleg. Því getur verið mikilvægt að varðveita sæði, eggfrumur eða fósturvísa áður en meðferð hefst.

Karlmenn

Karlmenn sem gangast undir meðferðir sem geta haft áhrif á frjósemi, til dæmis krabbameinsmeðferð, geta orðið fyrir skerðingu á sæðisframleiðslu eða sáðláti. Í slíkum tilvikum er hægt að frysta sæði til notkunar síðar, til dæmis við smásjárfrjóvgun (ICSI).

Markmiðið er yfirleitt að varðveita að minnsta kosti 10 strá af sæði. Því getur þurft að gefa fleiri en eitt sæðissýni áður en meðferð hefst.

Konur

Konum sem standa frammi fyrir meðferð sem getur haft tímabundin eða varanleg áhrif á frjósemi stendur til boða að frysta ófrjóvguð egg eða fósturvísa. Hægt er að nota þau síðar ef þörf krefur við frjósemismeðferð.

Ef tími og aðstæður leyfa er reynt að framkvæma fleiri en eina eggheimtu til að auka fjölda eggja sem hægt er að varðveita.

Aðrar ástæður fyrir varðveislu frjósemi

Einnig er hægt að varðveita frjósemi af öðrum ástæðum en vegna læknismeðferðar. Hægt er að frysta ófrjóvguð egg þegar einstaklingur eða par óskar eftir að fresta barnseignum um nokkur ár, til dæmis vegna náms, starfsframa eða annarra persónulegra aðstæðna.

Frysting eggja getur einnig verið valkostur þegar læknisfræðilegar aðstæður gera það að verkum að ráðlegt er að fresta þungun um tíma.

Viðtal og ráðgjöf

Einstaklingar sem vísað er til Livio vegna varðveislu frjósemi fá viðtal hjá sérfræðilækni. Þar er farið yfir meðferðarmöguleika, hvernig ferlið fer fram og hvaða áhrif varðveisla frjósemi getur haft á framtíðarmöguleika til barneigna.

Geymslutími

Samkvæmt íslenskum lögum má geyma:

  • Ófrjóvguð egg í allt að 50 ár
  • Sæði í allt að 50 ár
  • Fósturvísa í allt að 35 ár

Varðveisla frjósemi getur veitt mikilvægt öryggi fyrir framtíðina og aukið möguleika til barneigna síðar á lífsleiðinni.

Bókaðu tíma hjá einum af sérfræðilæknum okkar í gegnum Noona, með tölvupósti á reykjavik@livio.is eða í síma 430-4000.

 

Sérfræðilæknar Livio

Snorri Einarsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum og hefur starfað við ófrjósemislækningar frá árinu 2006. Hann hlaut viðurkenningu í ófrjósemislækningum sem undirsérgrein árið 2012, lauk doktorsprófi 2021 og er jafnframt kennari við læknadeild Háskóla Íslands.

Tinna Baldvinsdóttir er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Hún lauk sérnámi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og varð sérfræðingur árið 2016. Eftir það hefur hún sérhæft sig í sónarskoðun og fósturgreiningu samhliða störfum sínum við fæðinga- og kvensjúkdómalækningar.

Þorbjörn Have Jónsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum með greiningu og meðferð frjósemisvandamála sem sitt aðalstarfssvið.